Number of registered Mystery Shoppers


Algengar spurningar

1. Almennar upplýsingar

2. Umsókn

3. Vandamál leyst

4. Samkomulag / Greiðsla

5. Verkefni

7. Cookies


1. Almennar upplýsingar

Hvað er Mystery Shopping?
Ónafngreindar heimsóknir eru notaðar til að mæla og prófa þjónustu hjá fyrirtækjum á rauntíma. Ónafngreindir viðskiptavinir þurfa að taka vel eftir áður, á meðan og eftir heimsóknina hvernig fyrirtækið hegðar sér út frá þeim markmiðum sem fyrirtækið hefur sett sér og skrifa það niður. Mystery Shopping getur farið fram í eigin persónu, gegnum tölvupóst eða síma, bréfpósti eða á Internetinu. (2004-02-14)

Hvaða fyrirtæki nota Mystery Shopping?
Mystery Shopping er hægt að nota á öllum sviðum þar sem upplýsingar, þjónusta eða vörur eru seldar. Öll fyrirtæki sem hafa tengingu við viðskiptavini, birgja eða samstarfsfélög geta notast við ónafngreindar heimsóknir til að fylgja eftir hvernig fyrirtækið er að standa sig í augum viðskiptavina sinna. (2004-02-14)

Af hverju nota fyrirtæki Mystery Shoppers?
Til að meta, tryggja and bæta gæði og þjónustu. Þetta er grunnurinn að framförum og breytingu á þjónustu og arðsemi. (2004-02-14)

Hver les skýrsluna frá Mystery Shopper?
Þegar skýrslan kemur til Better Business er hún skoðuð af verkefnisstjóra. Niðurstöður eru síðan teknar saman og sendar til fyrirtækisins. Fyrirtæki sem notast við Mystery Shoppers hafa niðurstöður aðgengilegar bæði fyrir stjórnendur og starfsfólk. (2004-02-14)

Í hverju felst það að vera Mystery Shopper?
Å Það er ekki um fullt starf að ræða, þetta er fullkomið til að hafa með námi eða annarri vinnu, þar sem oftast er hægt að ráða hvenær verkefnin eru framkvæmd. Mystery Shopper þarf að vera nákvæmur og fara eftir þeirri reglu að segja ekki neinum frá upplýsingum. Lestu meira um (2004-02-14) laun. hér. (2004-02-14)

Trúnaður
Sem Mystery Shopper skrifar þú undir trúnaðarsamkomulag og lofar að gefa ekki upp neinar upplýsingar varðandi verkefni eða viðskiptavini, fleiri upplýsingar varðandi samkomulagið hér. (2004-02-14)

Hvernig á Mystery Shopper að hegða sér / aðhafast á meðan á heimsókn eða símtal stendur yfir?
Það er MJÖG mikilvægt að shopper falli vel að venjulegum viðskiptavinum, að hún/hann eigi ekki frumkvæði að einhverju sem getur haft áhrif á starfsmanninn á nokkurn hátt. Shopper skal ekki byggja matið á skoðun sinni þar sem hann er ekki ráðgjafi eða sérfræðingur á þessu sviði, heldur skal meta út frá STAÐREYNDUM og gefa upp hvað var á staðnum og hvað ekki og hvað var sagt og hvað ekki. Allir shoppers verða að hegða sér á svipaðann hátt svo að hægt sé að bera niðurstöður saman. Shopper á ekki að vera kröfuharður, gagnrýninn eða erfiður eða vera eftirtektaverður á nokkurn hátt, einnig skal hann ekki hafa áhrif á söluræðu eða uppákomur á meðan á heimsókn stendur yfir. Tilgangurinn með Mystery Shopping er að mæla hvernig komið er fram við venjulegann viðskiptavin. (2006-02-02)

Hvernig er notast við persónulegar upplýsingar?
Aðeins starfsfólk Better Business hefur aðgang að persónulegum upplýsingum. Upplýsingarnar eru ekki gefnar upp né seldar til annars fyrirtækis né viðskiptavina án leyfis. (2004-02-14)

Vil ekki vera skráð/ur?
Sendu tölvupóst á info@betterbusiness.is ásamt nafni og tölvupóstifangi sem þú ert með skráð á BAFF ONLINE.(2004-12-28)

Hvaða útbúnað þarf ég?
Til að geta unnið verkefni þarftu PC með Internet tengingu, tölvupóstfang, prentara og grunn tölvukunnáttu. Hugbúnaðurinn sem þú þarft er Microsoft Word, Excel and Acrobat Reader. (2004-03-26)



Hver er hentugur sem Mystery Shopper?
Allir geta skráð sig sem Mystery Shopper. Við viljum fá allskonar viðskiptavini og allir eru velkomnir að skrá sig inn á BAFF ONLINE. Fyrir hvert verkefni er sá sem hentar best hverju sinni valinn. (2004-02-14)


2. Umsókn

Hvað er BAFF ONLINE?
Það er vefgrunnurinn okkar fyrir verkefni, persónulegar upplýsingar, umsóknir, áætlanir og skýrslur. Þegar þú hefur skráð þig inn á BAFF ONLINE getur þú sérð öll verkefni sem í boði eru. (2004-02-14)

Hvernig get ég fengið aðgangsorð og lykilorð?
Ef þú ferð inn á heimasíðuna og ferð undir "Mystery Shopper Application / Ansökan / Umsókn". Þú getur valið þitt eigið aðgangsorð og lykilorð. Ef þú ert þegar skráð/ur veldu þá ”Gleymt lykilorð?”/”Forgot password?”, aðgangsorðið og lykilorðið mun vera sent til þín á tölvupóstfangið sem þú skráðir á BAFF ONLINE. (2004-02-14)

Hvernig fer ég inn í upplýsingarnar mínar á BAFF ONLINE?
Í fyrsta skiptið sem þú velur ”Mystery Shopper Application / Ansökan / Umsókn” efst á skráningarsíðunni. Velur þú upplýsingar, velur aðgangsorð og lykilorð og allar aðrar upplýsingar sem þarf að fylla út. Þegar þú hefur lokið við það velur þú að vista upplýsingarnar, eftir það getur þú fyllt út CV/ferilskrá, meðmælendur, mynd og aðrar persónulegar upplýsingar. (2004-02-14)

Hver uppfærir persónulegar upplýsingar?
Þú getur aðeins uppfært þínar persónulegu upplýsingar inn á BAFF ONLINE. Það er sérstaklega mikilvægt að þú uppfærir heimilisfang, tölvupóstfang og símanúmer ef það breytist, þannig að við getum alltaf náð í þig. (2004-12-28)

Hvernig uppfæri ég upplýsingarnar mínar?
Þú getur skráð þig inn hvenær sem er og breytt persónulegum upplýsingum inn á BAFF ONLINE (heimilisfang, tölvupóstfang, atvinnu, menntun, meðmælendum, mynd og fl.). (2004-02-14)

Af hverju þarf ég að hafa útfyllta CV og meðmæli?
Við viljum geta sett saman rétt verkefni fyrir rétta fólkið. Við viljum vita hvaða reynslu shopperinn hefur og á hvaða sviðum til að geta fundið hver hentar best fyrir hvaða verkefni. Ef þú hefur unnið að markaðsrannsókn og/ eða Mystery Shopping áður, þarft þú að gefa upp nafn á fyrirtæki og tímabilið sem unnið var á. (2004-09-25)

Hvern á ég að hafa sem meðmælenda?
Það geta verið til dæmis yfirmenn hjá síðutu tveimur vinnustöðum sem þú hefur unnið á eða unnið lengst á. Ef þú hefur ekki meðmæli frá fyrra starfi getur þú haft fólk sem þekkir þig vel; t.d kennara, þjálfara eða stjórnarmann hjá félagasamtökum sem þú ert í. Ef þú hefur unnið við markaðsrannsóknir og/eða Mystery Shopping áður, þarftu að gefa upp meðmæla frá þeim. (2004-09-25)


3. Vandamál leyst

3.1 Ég get ekki skráð mig inn?
Ef þú getur ekki fundið síðuna http://www.betterbusiness.is/ er síðan ekki fáanleg, reyndu aftur síðar. Ef þú færð upp síðuna til að skrá sig inn, sláðu inn rétt notendanafn og lykilorð, ef það gengur ekki gæti verið að þú þurfir að stilla öryggisstillinguna í Microsoft Internet Explorer. Þá ferðu undir Tools -> Internet-Options. Til að samþykkja cookies frá Better Business farðu undir Privacy og bættu við http://www.betterbusiness.is/ undir listann með heimasíðum, veldu Allow. Vistaðu stillinguna og passaðu að endurræsa vefskoðarann. Reyndu að skrá þig inn aftur. (2004-06-15)


4. Samkomulag / Greiðsla

Af hverju þarf ég að skrifa undir samkomulag?
Samkomulagið er gagnkvæm trygging beggja aðila hvað varðar réttindi og skyldur, t.d hvernig borgun fer fram gagnvart Mystery Shopper. Annað mikilvægt atriði er trúnaðarreglur sem allir Mystery Shoppers verða að fara eftir. (2004-02-14)

Hvar finn ég samkomulagið?
Samkomulagið er inn á BAFF ONLINE, veldu Samkomulag efst á síðunni. (2004-02-14)

Hvenær og hvert sendi ég samkomulagið?
Samkomulagið á að senda áður en þú framkvæmir fyrsta verkefnið þitt, til:
Fyrir shoppers á Íslandi: Better Business Island, P.O box 303, 220 Hafnarfjörður, ISLAND (2006-02-02)
Fyrir shoppers í Noregi: Better Business Norway, Klæbuveien 194, 7037 Trondheim, NORGE (2006-02-02)
Fyrir shoppers í Danmörku: Better Business Denmark, Slotsmarken 18, 2970 Hørsholm, DANMARK (2007-08-30)
Fyrir shoppers í öðrum löndum: AB Better Business, Vargmötesvägen 4, 186 30 Vallentuna, SVERIGE (2004-02-14)

Hversu mikið fæ ég borgað?
Það er mismunandi, algengast er 1500 kr. (200 SEK fyrir utan skatt í Svíþjóð og Noregi) Á Íslandi sér shopper sjálfur um að borga skatt. (2004-02-14)

Hvaða skyldum hef ég að gegna sem Mystery Shopper?
Þér er aðeins skylt að framkvæma heimsóknir sem þú hefur staðfest inn á BAFF ONLINE. Þú þarft að lesa gegnum leiðbeiningarnar og atriðalistann og hafa síðan samband við Better Business til að fara yfir listann áður en þú framkvæmir heimsóknina. Þú ert ábyrgur fyrir að framkvæma heimsóknina eins og fyrirskipað er og skila skýrslu á réttum tíma. Ef þú getur ekki framkvæmt heimsókn þarftu að láta okkur vita sem fyrst. (2004-02-14)

Hvaða réttindi hef ég sem Mystery Shopper?
Þú sækir aðeins um verkefni sem þú hefur áhuga á. Þú hefur rétt til að hafna heimsókn, en þú þarft að gera það sem fyrst. Þú hefur rétt á borguninni sem var samin um ef þú hefur framkvæmt heimsóknina eins og beðið var um. Þú getur afskráð þig af BAFF ONLINE þegar þú óskar þess með því að senda tölvupóst eða hringja til Better Business. (2004-02-14)

Hvenær og hvernig fæ ég borgað?
Greiðslur eru greiddar 15. hvers mánaðar mánuðinn á eftir að heimsókn líkur. Borgunin fer í gegnum bankareikninginn sem þú gafst upp á samkomulaginu. (2004-02-14)

Hvað á ég að hugsa um þegar ég sendi reikning?
NOTE! We only accept invoices for assignments where the fee for THE SINGLE visit is at least 2000 SEK.
Reikningurinn á að innihalda daginn sem reikningurinn er gefinn út
(sami mánuður og verkefnin voru framkvæmd) og greiðsludag (minnsta kosti 20 daga).
• Nafn þitt þarf að vera á reikningnum
• Reikningurinn á aðeins að ná yfir einn mánuð, t.d heimsóknir í
desember eiga að vera saman á reikningi dagsettur í desember
• Skrifa skal hvaða verkefni er verið að senda reikning fyrir,
staðsetning og dagsetningu verkefnis.
(2005-06-15)

Hvað merkir atvinnu/trúnaðarupplýsingar?
Allar upplýsingar um hugtak Better Businesss, skjólstæðingar, reglur, leiðbeiningar, atriðalistar, skýrslur, atburðir og niðurstöður verkefna eru trúnaðarupplýsingar og ættu að vera meðhöndla með tilliti til þess. Ef Mystery Shopper gefur upp einhverjar upplýsingar til þriðja aðila, ber Mystery Shopper að greiða bætur til Better Business allt eftir því hversu miklum skaða Better Business hefur orðið fyrir. (2004-02-14)

Hvaða skyldum gegni ég sem Mystery Shopper?
Þú ert ábyrg/ur fyrir að framkvæma verkefni sem þú hefur staðfest og alltaf að gefa sannar og réttar upplýsingar til Better Business og í skýrsluna þína. (2004-02-14)

Þarf ég að taka fram laun frá Better Business í skattaskýrslunni minni?
Já . (2004-02-14)

Þarf ég að láta vita af launum frá Better Business ef ég er á atvinnuleysisbótum?
Best er að hringja og athuga það. (2004-02-14)

Hversu mikill skattur er dreginn frá?
30% skattur er dreginn frá hjá öllum shopperum ef ekki er haft samband við okkur með aðrar upplýsingar, þetta á við í Svíþjóð og Noregi. Í öðrum löndum þar á meðal Íslandi ber shopper sjálfur ábyrgð á að greiða skatt. (2004-02-14)

Hvernig eru lífeyris – og félagsgjöld greitt?
Better Business borgar lífeyrissjóðsgreiðslur ef þú ert launþegi. Ef sendur er reikningur (verktaki) ber þér að greiða lífeyris - og félagsgjöld sjáf/ur. (2004-02-14)

Hvaða vinnuöryggi hef ég?
Þú hefur rétt á að framkvæma þau verkefni sem hafa verið áætluð á þig. Athugið að þetta er ekki “venjuleg” vinna sem þú getur unnið 100%. Þetta er mjög gott að hafa sem annað starf meðfram; námi, barneignaleyfi eða ert í sjálfstæðum rekstri. (2004-02-14)

Fæ ég ferðakostnað endurgreiddann þegar ég framkvæmi verkefni?
Nei, í fæstum verkefnum er ferðakostnaður endurgreiddur. Við treystum á að þú þurfir ekki að ferðast til að geta framkvæmt verkefnið, heldur áætlum verkefnum þar sem þú býrð eða ert að ferðast engu að síður. Ef við, í sjaldgæfum verkefnum, getum ekki fundið shopper sem er á staðnum, væri möguleiki á að bjóða ferðakostnað til að geta framkvæmt verkefnið. Í tilfellum sem slíkum væri ferðakostnaðurinn ákveðinn fyrirfram og áður en heimsókn er framkvæmd. Einnig þyfti skriflegt samkomulag vegan þessa frá Better Business, annars yrði greiðsla ekki borguð. (2004-02-14)

Hvernig fæ ég borgðann útlagðann kostnað?
Útgjöld sem eru yfir 5.000 krónum er borgað út um leið og við fáum kvittun. Ef upphæðin er minni en 5.000 krónur mun það vera borgað í tengslum við laun / reikning. Aðeins kostnaður sem var samþykktur af verkefnastjóra er endurgreiddur.

Kan jeg få lønn for oppdrag som ikke er bekreftet med kvittering eller lignende?
NEI, allar heimsóknir þurfa að vera staðfestar með annað hvort kvittun, nafnspjaldi sölufulltrúa eða einhverju álíka. Í leiðbeiningum í viðkomandi verkefni, getur þú lesið um hvernig/hvenær þú getur send staðfestingu til BETTER BUSINESS. (2005-06-15)

Hvert sendi ég kvittun?
Á sama stað og þú sendir samkomulagið. Merktu umslagið með nafni verkefnisins. (2006-02-02)

Get ég framkvæmt Mystery Shopping fyrir nokkur fyrirtæki?
Já þú getur það, hafðu það hugfast samt sem áður að allar upplýsingar varðandi okkur og okkar viðskiptaaðila er trúnaðarmál. (2004-02-14)

Má ég segja frá að ég hafi framkvæmt Mystery Shopping fyrir Better Business?
Já, við viljum gjarnan að þú segir frá því að þú hafir unnið verkefni fyrir okkur, hvað Mystery Shopping er og hvernig Better Business starfar. Þú má ALDREI segja neinum frá hvaða fyrirtæki / verslanir þú hefur heimsótt sem Mystery Shopper. Þú mátt ekki gefa upplýsingar um atriðalistann, leiðbeiningarnar eða upplifun þína eða þína skoðun á heimsókninni. (2004-02-14)


5. Verkefni

Hversu oft get ég fengið verkefni þar sem ég bý?
Það er mismunandi, fer aðallega eftir því hvar þú býrð. Algengast era ð ekki má heimsækja sömu einingu / verslun oftar en þriðja hvern mánuð. (2004-02-14)

Hvað tekur langan tíma að framkvæma heimsókn?
Það er mismunandi. Heimsóknin sjálf í verslunina getur tekið um 20 mínútur, undirbúningurinn, heimsóknin og skýrslugerðin tekur að meðaltali um 90 mínútur í fyrsta skipti svo um 60 mínútur. Símtal eða heimsókn á heimasíðu getur tekið aðeins um 1-2 mínútur. (2004-02-14)

Þarf ég að KAUPA eitthvað þegar ég framkvæmi heimsókn?
Það fer eftir verkefnum. Stundum þarf að kaupa e-ð og þá færðu kostnaðinn að sjálfsögðu endurgreiddan. (2004-02-14)

Hvernig skrái ég mig á verkefni?
Þú þarft að vera virk og skrá þig reglulega inn á BAFF ONLINE. Hægra megin sérð þú verkefni sem eru í gangi. Veldu verkefni til að lesa upplýsingar og ef þú á við lýsinguna sem er leitað eftir og langar að framkvæma heimsóknina, fylltu út umsóknina og sendu hana. (2004-02-14)

Fæ ég fræðslu / leiðbeiningar?
Allir shopperar fá símafund áður en þeir framkvæma ný verkefni. Þá er farið yfir verkefnið í sameiningu. Þá er athugað hvort þú skiljir leiðbeiningarnar og atriðalistann rétt. Það er mikilvægt að þú sért búin að skoða og lesa í gegnum efnið áður en þú biður um símafund. Stundum eru nokkrir shopperar saman á símafundi með verkefnastjóra. (2004-02-14)

Fundur - Símafundur
Ef margir shopperar þurfa fund á sama tíma er skipulagður fundur fyrir alla. Ef þetta yrði raunin færðu upplýsingar undir heimsóknar upplýsingar inn á BAFF ONLINE. Þú færð tímasetningu, dagsetningu og símanúmer sem þú átt að hringja í.

Einkunn gefin fyrir Mystery Shopper
Við gefum öllum Mystery Shopper skýrslum einkunn inn á BAFF ONLINE. Mælikvarðinn er frá 1-10. Einkunnir eru aðgengilegar fyrir alla shopper og fyrir verkefnastjóra. Ef þú vit fá góða einkun, skoðaðu vandlega."Gátlisti fyrir atriðalista". (2004-03-26)

Við viljum verða betri og bæta BAFF ONLINE!
Við erum mjög þakklát fyrir ef við fáum ráðleggingar hvernig við getum bætt virkni BAFF ONLINE. Vinsamlegast sendu tölvupóst á info@betterbusiness.is. Við viljum vera besta fyrirtækið á norðurlöndunum í Mystery Shopping og við viljum ávallt bæta þjónustu okkar!

Við viljum verða betri og bæta BAFF ONLINE!
Við erum þakklát fyrir ábendingar um hvernig við getum bætt BAFF ONLINE og orðið árángursríkari. Vinsamlegast sendu okkur tölvupóst á info@betterbusiness.is. Við viljum vera besta fyrirtæki á norðurlöndunum í Mystery Shopping og við viljum ávallt bæta þjónustu okkar!


 

7. Cookies

Upplýsingar um cookies
Samkvæmt Sænskum lögum ber okkur að upplýsa gesti um hvað cookies eru og til hvers það er notað og hvernig á að hafna þeim. Cookie er lítið textaskjal sem er geymt í tölvunni þinni þegar þú skráir þig inn á BAFF ONLINE. Cookie er sent milli tölvunnar þinnar og vefþjóns (server) þar sem heimasíðan er geymd. Cookie er notað til að bera kennsl á viðkomandi svo réttar upplýsingar komist til skila. Ef vefþjóninn þinn leyfir ekki cookies getur þú ekki skráð þig inn. (2004-06-15)


Gasell Vinnare 2008